Creditinfo
Creditinfo Estonia heldur utan um stærsta gagnagrunn um lánshæfi í Eistlandi. Meðal þjónustuframboðs eru lánshæfismöt, lánshæfiseinkunnir, lánavöktun og innheimtu- og skuldrastýring. Markmið félagsins er að veita nákvæmar og tímanlegar lánsfjár- og fjárhagsupplýsingar sem gera viðskiptavinum kleift að taka upplýstar fjárhagslegar ákvarðanir og draga úr áhættu.
– Það að hafa einn áreiðanlegan samstarfsaðila fyrir allar okkar auðkenningar- og undirskriftaþarfir hefur einfaldað alla innri ferla til muna.
Upplýsingatæknistjóri Eystrasaltsríkjanna og stjórnarmaður hjá Creditinfo í Eistlandi
Áskoranir
Creditinfo í Eistlandi á og rekur mismunandi gáttir og kerfi þar sem hvert kerfi fyrir sig notaði áður sérstakar API-lausnir fyrir auðkenningu og rafræna undirritun. Umsýsla og viðhald á svo mörgum stökum lausnum reyndist hins vegar bæði tímafrekt og óskilvirkt.
Til að spara tíma og straumlínulaga ferlana hóf fyrirtækið leit að einum samstarfsaðila sem gæti boðið heildstæða lausn sem mætti öllum þörfum þeirra varðandi auðkenningu og rafrænar undirskriftir.
Lausnir
Þar sem þúsundir manna nota gáttir og kerfi Creditinfo í Eistlandi á hverjum degi var mikilvægt að finna lausn sem væri einstaklega áreiðanleg og auðveld í notkun fyrir viðskiptavini.
Einföld samþætting og greinargóðar verklýsingar voru einnig meginþættir í ákvarðanaferlinu. Þar að auki var mikilvægt fyrir félagið að samstarfsaðilinn væri traustur og rótgróinn á Eystrasaltsmarkaðnum.
Eftir að hafa skoðað nokkra þjónustuaðila og átt fund með fulltrúum Dokobit komst Creditinfo í Eistlandi að þeirri niðurstöðu að Dokobit hentaði best, bæði hvað varðar verð og gæði.
Útkoma
Creditinfo í Eistlandi notar nú API-lausnir Dokobit fyrir rafræna undirritun og auðkenningu. Auðkenningarlausnin gerir viðskiptavinum kleift að skrá sig inn á gáttir Creditinfo á einfaldan, hraðvirkan og öruggan hátt með þeim rafrænu skilríkjum sem þeir kjósa, til dæmis Mobile-ID, ID-korti eða Smart-ID.
Rafræna undirritunarlausnin er nýtt til að undirrita samstarfssamninga við viðskiptavini á einfaldan og hagkvæman máta.
Dokobit hefur gert Creditinfo í Eistlandi kleift að spara umtalsverðan tíma og veita viðskiptavinum sínum betri notendaupplifun. Þá leggur fyrirtækið sérstaka áherslu á að það að reiða sig á einn traustan samstarfsaðila fyrir alla auðkenningu og rafrænar undirskriftir hafi einfaldað alla innri ferla til muna.